Pogba stóðst læknisskoðun hjá Juventus í gær
Franski miðjumaðurinn Paul Pogba stóðst læknisskoðun hjá ítalska félaginu Juventus í gær, en þetta kom fram á heimasíðu félagsins.
Pogba, sem er 19 ára gamall, kemur til Juventus á frjálsri sölu, en samningur hans við enska liðið Manchester United rann út í sumar og ákvað hann því að leita á önnur mið.
Hann kom til Manchester United frá Le Havre árið 2009, en hann á sjö leiki að baki með aðalliði United. Hann ákvað í mars að endurnýja samning sinn ekki við félagið og gerði því munnlegt samkomulag við ítalska félagið.
Það leit svo út fyrir að leikmaðurinn væri að skrifa undir hjá United er hann var í hóp liðsins undir lok tímabilsins, en svo var ekki og skrifar hann undir fjögurra ára samning við Juventus á allra næstu dögum.
Hann stóðst læknisskoðun í gær, en félagaskiptin hafa tekið sinn tíma þar sem Pogba var að leika með U19 ára landsliði Frakklands.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:45