Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 28. júlí 2012 12:43
Magnús Már Einarsson
Kolbeinn á leið til Íslands í meðferð við bakmeiðslum
Kolbeinn Sigþórsson, framherji Ajax, mun fljúga heim til Íslands eftir æfingaleik liðsins gegn Southampton í dag.

Kolbeinn er á leið í meðhöndlun á Íslandi vegna bakmeiðsla sem hafa verið að hrjá hann.

Ajax er í æfingaferð á Englandi þessa dagana en liðið mætir Southampton í æfingaleik í dag og Norwich á þriðjudaginn.

Samkvæmt Twitter síðu Ajax ætti Kolbeinn að verða klár í slaginn á nýjan leik þegar keppni í hollensku úrvalsdeildinni hefst í næsta mánuði.

Kolbeinn missti af stórum hluta síðasta tímabils eftir að hafa fótbrotnað í október.
Slapp
banner