Þá er komið að slúðurpakka dagsins í boði Powerade en hann er tekinn beint af vefsíðu BBC. Mikið er að gerast á leikmannamarkaðinum þar sem Robin van Persie og Luka Modric eru hvað heitastir.
Juventus er hætt að eltast við Robin van Persie vegna of mikillar samkeppni frá Manchester City og Manchester United. (Daily Mail)
Jose Mourinho hefur skorið sig í leikinn persónulega til að reyna að fá Luka Modric frá Tottenham til Real Madrid. (Daily Mirror)
Tottenham er að íhuga tilboð í Joe Allen miðjumann Swansea, en Liverpool er einnig á eftir honum. (Daily Star)
Manchester United reynir lokaboð í brasilíska miðjumanninn Lucas Moura hjá Sao Paulo. (Metro)
United er einnig að íhuga að kaupa Moussa Dembele frá Fulham en líklegt kaupverð fyrir þennan belgíska miðjumann er í kringum 15 milljónir punda. (The People)
Arsenal þarf að borga að minnsta kosti 20 milljónir punda ef liðið vill fá Santi Cazorla til sín frá Malaga. (Metro)
Arsenal er hins vegar nálægt því að landa Nuri Sahin frá Real Madrid á eins árs lánssamning. (Daily Mail)
Liverpool og Arsenal eru í samkeppni við Lyon um að kaupa Mamadou Sakho frá Paris St Germain. (talkSPORT)
Villarreal gæti misst Giuseppe Rossi frá sér eftir að félagið féll úr efstu deild á Spáni á síðasta tímabili, en Rossi sjálfur verður frá í einhvern tíma vegna krossbandsmeiðsla. (talkSPORT)
West Ham virðist vera líklegra heldur en Wigan til að fá varnarmanninn Ivan Ramis til liðs við sig. (Daily Mirror)
Paul Lambert reynir að fá Ron Vlaar, varnarmann Feyenoord, til Aston Villa og ættu félagsskiptin að ganga í gegn eftir helgi fyrir 3.2 milljónir punda. (Daily Telegraph)
Ítalski knattspyrnustjórinn Gianfranco Zola vill fá DJ Campbell, sóknarmann QPR, til Watford. (Daily Mirror)
Steve Kean vill fá Simon Cox og Aaron Hughes til Blackburn eftir að hafa misst Junior Hoilett til QPR. (Daily Mirror)
Rangers ætlar ekki að reyna að fá Adrien Silva til sín eftir að Sporting Lisbon hafnaði 750 þúsund punda tilboði í hann. (Lancashire Telegraph)
Southampton fylgist með kamerúnska varnarmanninum Jean-Armel Kana-Biyik sem spilar fyrir Rennes í Frakklandi. (The Sun)
Randy Lerner, eigandi Aston Villa, er að selja Cleveland Browns liðið sitt og gæti fengið rúmlega 600 milljónir punda fyrir það. Hann segir að einhver partur peningsins gæti farið í leikmannakaup hjá Villa. (Daily Mirror)




