Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 28. júlí 2012 16:00
Ívan Guðjón Baldursson
Hargreaves æfir með QPR
Owen Hargreaves er samningslaus eftir að samningur hans við Manchester City var ekki endurnýjaður en hann er byrjaður að æfa með QPR.

Hargreaves kom til Manchester United frá Bayern Munchen fyrir 17 milljónir punda árið 2007 en hefur síðan þá verið meiddur og spilað lítið af leikjum.

,,Owen er að æfa með hópnum, það eru engar skuldbindingar," segir Mark Hughes, knattspyrnustjóri QPR.

,,Hann langar að halda sér í formi og við erum mjög ánægðir með að gæðaleikmaður sé að æfa með okkur."

QPR hefur verið mjög virkt á leikmannamarkaðinum í sumar þar sem félagið hefur fengið sjö leikmenn til sín hingað til.
Slapp
banner
banner