Þremur leikjum var að ljúka í 1. deild karla þar sem Fjölnir jafnaði metin gegn BÍ/Bolungarvík á Ísafirði þrátt fyrir að vera manni færri. Steinar Örn Gunnarsson markvörður Fjölnis sá rauða spjaldið seint í leiknum en jöfnunarmarkið á 94. mínútu var sjálfsmark.
Víkingur Ólafsvík fór á toppinn með sigri á Tindastóli en Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði tvívegis fyrir þá eftir að þeir lentu undir. Þá gerðu Haukar og Höttur markalaust jafntefli.
Víkingur Ólafsvík fór á toppinn með sigri á Tindastóli en Guðmundur Steinn Hafsteinsson skoraði tvívegis fyrir þá eftir að þeir lentu undir. Þá gerðu Haukar og Höttur markalaust jafntefli.
BÍ/Bolungarvík 2 - 2 Fjölnir:
0-1 Guðmundur Karl Guðmundsson ('34)
1-1 Andri Rúnar Bjarnason ('44)
2-1 Mark Tubæk ('78, víti)
2-2 Sigurgeir Sveinn Gíslason ('94, sjálfsmark)
Rautt spjald: Steinar Örn Gunnarsson, Fjölnir ('78)
Haukar 0-0 Höttur:
Víkingur Ó 2 - 1 Tindastóll:
0-1 Max Toulette ('41)
1-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson ('58)
2-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson ('84)
Rautt spjald: Edvard börkur Óttharsson, Tindastóll ('45)


