Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Alfreð Finnbogason skoruðu báðir þegar Norrköping, lið Gunnars Heiðars, vann 1-2 sigur á Helsingborg sem Alfreð leikur með, í dag.
Gunnar Heiðar kom Norrköping yfir á 17. mínútu leiksins og Shpetim Hasani bætti við öðru marki á 25. mínútu.
Alfreð minnkaði svo muninn á 68. mínútu en meira var ekki skorað.
Gunnar Heiðar spilaði fyrstu 70 mínúturnar í leiknum fyrir Norrköping en Alfreð allan leikinn fyrir Helsingborg.
Þeir Gunnar Heiðar og Alfreð bæta því við sig hvor sínu markinu í baráttu um markakóngstitilinn. Þar er Waris Majeed leikmaður Hacken efstur með 13 mörk, næstur Vikctor Prodell hjá Atvidaberg með 12.
Alfreð er svo í þriðja sæti ásamt Rene Makondele leikmanni Hacken með 10 mörk og þar á eftir koma Gunnar Heiðar og Mathias Ranégie leikmaður Malmö með 9 mörk.


