Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 28. júlí 2012 19:02
Ívan Guðjón Baldursson
Vináttuleikir: Úrslit úr nokkrum leikjum dagsins
Mikið af vináttuleikjum fóru fram í dag þar sem ýmis úrvalsdeildarlið komu við sögu og lögðu neðrideildarlið frá Englandi.

Nokkrir áhugaverðir leikir áttu sér þó stað þar sem lið af svipuðum styrkleika mættust í skemmtilegum viðureignum.

Celtic mætti Inter og var marki yfir mestan leikinn eða alveg þangað til á 88. mínútu þegar Rodrigo Palacio jafnaði.

Juventus lagði Herthu Berlin með mörkum frá Alessandro Matri og Milos Krasic og nokkru síðar tapaði Southampton fyrir Ajax með einu marki gegn engu.

Wigan gerði svo jafntefli við Hoffenheim og Gylfi Þór Sigurðsson lék rúman klukkutíma í 0-0 jafntefli Tottenham og Liverpool.

Celtic 1 - 1 Inter
1-0 Commons ('41)
1-1 Rodrigo Palacio ('88)

Hertha Berlin 0 - 2 Juventus
0-1 Alessandro Matri ('21)
0-2 Milos Krasic ('90)

Southampton 0 - 1 Ajax
0-1 Ozbiliz ('64)

Wigan 1 - 1 Hoffenheim
1-0 Boselli ('23)
1-1 Delpierre ('40)

Tottenham 0 - 0 Liverpool
Slapp
banner
banner