Edinson Cavani segist ekki ætla að yfirgefa Napoli í sumar þrátt fyrir gríðarlega mikinn áhuga frá stórliðum á Englandi.
Manchester City og Chelsea eru talin vera á eftir þessum úrúgvæska sóknarmanni en nokkur af öðrum helstu liðum Evrópu eru einnig á eftir honum.
Manchester City og Chelsea eru talin vera á eftir þessum úrúgvæska sóknarmanni en nokkur af öðrum helstu liðum Evrópu eru einnig á eftir honum.
,,Vilja stóru ensku félögin mig? Ég svara: Áfram Napoli!" Sagði Cavani þegar hann var spurður út í framtíð sína.
,,Það er sagt að ensk knattspyrna sé list, svo ég gæti farið þangað einn daginn ef möguleikann ber að garði."
Mikið hefur verið rætt um að Cavani sé á förum frá Napoli, sérstaklega eftir að konan hans var rænd í Napólí.
Þrátt fyrir það segist Cavani ekki ætla að yfirgefa félagið eða borgina og svaraði með því að segja að stuðningsmenn Napoli myndu aldrei ræna pening af konu hans.
,,Þetta var ekki fótboltaáhugamaður. Þetta var ekki einn þeirra Napólíbúa sem hafa stutt mig og sýnt mér ást og umhyggju á síðustu árum."



