Sænski miðjumaðurinn Kim Kallstrom er á leið til Spartak frá Moskvu í Rússlandi og verður þetta staðfest á næstu dögum.
Kallstrom hefur spilað fyrir Lyon í sex ár og hefur hann unnið frönsku efstudeildina tvisvar og franska bikarinn tvisvar.
Kallstrom hefur spilað fyrir Lyon í sex ár og hefur hann unnið frönsku efstudeildina tvisvar og franska bikarinn tvisvar.
Kallstrom fer í læknisskoðun og skrifar undir samning við félagið á mánudaginn og verður kynntur sem nýr leikmaður þess í kjölfarið.
Kallstrom er 29 ára gamall og á 95 landsleiki og 16 mörk að baki fyrir sænska landsliðið.




