Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 29. júlí 2012 18:42
Jón Stefán Jónsson
Páll Einars: Stoltur af mínum mönnum
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Páll Einarsson, þjálfari Þróttar var að vonum ánægður með sigur sinna manna á Þór í dag 1-0 á Valbjarnarvelli. Þróttarar spiluðu manni færi í tæpar 35 mínútur en vörðust vel og gáfu fá færi á sér.

,,Ég er ótrúlega ánægður og stolltur af strákunum í dag. Mér fannst þetta sanngjörn úrslit, leikurinn var ótrúlega jafn og mikið um að vera en við skoruðum þetta mark sem skyldi liðin að í lokin og þess vegna fannst mér þetta sanngjarnt," sagði Páll.

Hann vildi lítið tjá sig um dómgæsluna í leiknum en tveir Þróttarar fengu rauða spjaldið og einn Þórsari: ,,Nei nei ég vil lítið segja um hana, ég sá ekki atvikið þegar fyrirliðarnir fengu rautt en dómarinn bara dæmir og við verðum að fara eftir því."

Páll bætti við að lokum: ,,Ég var virkilega ánægður með fókusinn hjá strákunum í dag, staða okkar í deildinni var ekkert sérstök og þess vegna var einbeitingin algjörlega þar en ekki í bikarleiknum og það komu flottir strákar inn í staðin fyrir þá sem voru í banni þannig að ég get ekki kvartað."
Slapp
banner
banner
banner