Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 01. ágúst 2012 21:08
Brynjar Ingi Erluson
2.deild: KF fór illa með Reyni - Hamar kjöldró Aftureldingu
Þórður skoraði enn og aftur fyrir KF
Þórður skoraði enn og aftur fyrir KF
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fjórir leikir voru að klárast í 2. deild karla nú rétt í þessu, en þar áttu sér stað nokkuð óvænt úrslit þar sem Hamar fór illa með Aftureldingu.

Hamar vann Aftureldingu með fjórum mörkum gegn engu. Aron Már Smárason skoraði fyrsta markið á 47. mínútu áður en Ágúst Örlaugur Magnússon bætti við öðru úr vítaspyrnu á 70. mínútu. Lánsmaðurinn frá Selfyssingum, Abdoulaye Ndiaye og Sene Abdalha bættu svo við tveimur mörkum.

KF vann þá 4-0 sigur á Reyni Sandgerði. Nenad Zivanovic, Þórður Birgisson, Agnar Þór Sveinsson og Skagamaðurinn Jón Björgvin Kristjánsson komust allir á blað í liði Fjallabygðar. KF er því komið í annað sæti deildarinnar með 26 stig.

Ólafur Jón Jónsson tryggði þá Njarðvíkingum sigur á Dalvík/Reyni. Fjarðabyggð og KFR skildu þá jöfn 1-1. Milan Markovic kom heimamönnum yfir áður en Þórhallur Lárusson jafnaði metin fyrir KFR. Tvö rauð spöld mættu til leiks, en Maciej Majewski fékk fyrra rauða á 78. mínútu en það síðara er óvitað.

Úrslit og markaskorarar af Úrslit.net:

Hamar 4-0 Afturelding
1-0 Aron Már Smárason ('47 )
2-0 Ágúst Örlaugur Magnússon ('70, víti )
3-0 Abdoulaye Ndiaye ('78 )
4-0 Sene Abdalha ('83 )

KF 4-0 Reynir S.
1-0 Nenad Zivanovic ('33 )
2-0 Þórður Birgisson ('49, víti )
3-0 Agnar Þór Sveinsson ('78 )
4-0 Jón Björgvin Kristjánsson ('88 )

Fjarðabyggð 1-1 KFR
1-0 Milan Markovic ('2 )
1-1 Þórhallur Lárusson ('69 )
Rautt spjald: Matiej Majewski ('78, KFR).

Njarðvík 1-0 Dalvík/Reynir
1-0 Ólafur Jón Jónsson ('13 )
Slapp
banner