„Við förum í flesta leiki þannig að við erum lítið að velta því fyrir okkur hvað andstæðingarnir eru að gera," sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, í viðtali í Boltanum X-inu 97,7.
KR heimsækir Grindavík í undanúrslitum bikarsins í kvöld.
KR heimsækir Grindavík í undanúrslitum bikarsins í kvöld.
„Þrátt fyrir að að sé stutt á milli leikja hefur undirbúningurinn verið góður. Við erum klárir í bátana. Mér finnst skemmtilegra að hafa stutt milli leikja, við erum fullir tilhlökkunar."
Bjarni viðurkennir að búast við miklum varnarpakka hjá Grindavík í kvöld. Liðið er í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar og flestir búast við öruggum sigri KR. Þjálfari Grindavíkur er Guðjón Þórðarson, faðir Bjarna.
„Eins og Grindavík hefur verið að spila hingað til þá myndi maður halda að þeir mæti okkur með varnarpakka og liggi til baka. Maður veit samt ekkert hvað kallinn gerir. Hann gæti sett á okkur pressu þó ég tel það ólíklegt," sagði Bjarni.
Í síðasta leik lék Bjarni gegn bróður sínum, Jóhannesi Karli, og í kvöld mætir hann föður sínum.
„Fyrir og eftir Skagaleikinn voru ýmsar umræður um allskonar hluti. Þá var maður með fólk á sitthvorum vængnum. Ég held mig samt til hlés."
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:15.


