Í skýjunum með sigur á liðinu sem slátraði KR
Celtic vann 2-1 sigur gegn HJK Helsini í forkeppni Meistaradeildarinnar í gær. Þetta var fyrri leikur liðanna en leikið var í Glasgow.
Leikurinn var stórskemmtilegur en Glasgow náði naumum sigri eftir að hafa lent undir. HJK burstaði KR í umferðinni á undan.
„Ég er alls ekki svekktur, ég er í skýjunum. Liðið hefur tekið miklum framförum frá sama tíma í fyrra. Helsinki var heppið að tapa bara 2-1. Við sýndum frábæran karakter eftir að hafa lent undir," sagði Neil Lennon, knattspyrnustjóri Celtic.
„Þetta var okkar fyrsti mótsleikur á tímabilinu og frammistaðan var frábær"
Celtic mun klárlega rúlla yfir skosku deildina á komandi tímabili eftir gjaldþrot Rangers og því leggur Lennon gríðarlega áherslu á góðan árangur í Evrópukeppni.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar