Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. ágúst 2012 21:30
Daníel Freyr Jónsson
Fenerbahce í viðræðum um kaup á Krasic og Yobo
Tyrkneska félagið Fenerbahce mun af öllum líkindum ganga frá kaupunum á varnarmanninum Joseph Yobo frá Everton á næstu dögum.

Yobo lék tvö síðustu tímabil með félaginu á láni en núna hefur Everton staðfest að viðræður séu í gangi um endanlega sölu á leikmanninum.

Á sama tíma hefur Fenerbahce einnig staðfest viðræður við Juventus um miðjumanninn Milos Krasic.

Það hefur verið ljóst frekar lengi að Krasic væri á förum frá ítölsku meisturunum. Hann hefur verið orðaður við ensk félög undanfarið. 

Krasic skoraði í tveimur æfingaleikjum Juventus nýverið en það var ekki nóg til að heilla forráðamenn félagsins og verður hann líklega seldur á allra næstu dögum.
Slapp
banner
banner