Fjarvera Daniel Agger vekur upp grunsendir
Daniel Agger er ekki í leikmannahópi Liverpool sem nú leikur gegn Gomel í undankeppni Evrópudeildarinnar.
Upphaflega var talið að þessi öflugi miðvörður ætti við meiðsl að stríða, en umboðsmaður hans segir svo ekki vera.
,,Hann er alls ekki meiddur," sagði Per Steffensen við danska blaðið Politiken.
,,Aðeins félagið og stjórinn geta svarað því af hverju hann er ekki í hópnum."
Daninn hefur verið orðaður við Manchester City og Barcelona í sumar og hefur Liverpool meðal annars hafnað tilboðum frá Englandsmeisturunum.
Rætt hefur verið um að fjarvera Agger skýrist af því að hann sé við það að yfirgefa félagið og hafi farið fram á sölubeiðni. Steffensen veit ekki til þess, né heldur hvort Liverpool hafi borist tilboð í leikmanninn.
,,Liverpool verða að svara því hvort þeir hafi fengið einhver tilboð. En fréttirnar um að Agger hafi lagt inn sölubeiðni eru algjörlega út í bláinn. Hann er mjög ánægður hjá Liverpool."

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00
11:12