Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 03. ágúst 2012 21:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Pienaar: Fylgdi hjarta mínu
Steven Pienaar segist hafa fylgt hjarta sínu með að vera áfram herbúðum Everton eftir að hafa verið samningsbundinn Tottenham á síðustu leiktíð.

Pienaar var á láni hjá Everton á seinni hluta síðustu leiktíðar en hefur nú gengið til liðs við félagið fyrir 4,5 milljónir punda og skrifað undir fjögurra ára samning.

Pienaar kom fyrst til Everton árið 2007 á láni frá Dortmund og var loks keyptur til félagsins ári síðar. í byrjun árs 2011 gekk hann til liðs við Tottenham en var óheppinn með meiðsli og spilaði þar einungis tíu leiki.

,,Það var erfitt að kveðja í lok síðustu leiktíðar og ég talaði við stjórann áður en ég fór og þá áttaði ég mig á því að ég vildi koma aftur," sagði Pienaar.

,,Eg var þá búinn að ákveða mig, ég fylgdi hjarta mínu og beið eftir að félagaskiptin myndu ganga í gegn."

,,Félagið hefur verið hluti af fjölskyldunni síðan ég kom hingað fyrst. Fjölskyldan vildi koma aftur og mér var boðið að koma aftur svo þetta var auðveld ákvörðun."
Slapp
banner