Heimild: AP
Thomas Sörensen, markvörður Stoke, hefur ákveðið að hætta að leika með danska landsliðinu.
Sörensen, sem er 36 ára, hefur tekið þessa ákvörðun til að einbeita sér að ferli sínum hjá Stoke.
Sörensen hefur verið aðalmarkvörður Dana um árabil en hann á 101 landsleik að baki.
Hann var ekki með Dönum á EM í sumar vegna bakmeiðsla.
Í gær greindi miðjumaðurinn Christian Poulsen frá því að hann væri hættur að leika með landsliðinu en hann lék 92 leiki á ferli sínum með Dönum.




