Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 08. ágúst 2012 14:00
Elvar Geir Magnússon
Tottenham með nýtt tilboð í Damiao
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur gert nýtt tilboð í Brasilíumanninn Leandro Damiao og telur líklegt að ná að landa leikmanninum. Damiao leikur með Internacional í heimalandinu.

Tottenham keypti Sandro frá sama félagi 2010.

Damiao hefur leikið glimrandi vel með liði Brasilíu á Ólympíuleikunum en Tottenham þarf nauðsynlega að bæta við sig sóknarmanni fyrir komandi tímabil.

Jermain Defoe er enn hjá félaginu en lítið þokast í að krækja í Emmanuel Adebayor sem var á láni hjá Tottenham á síðasta tímabili. Launakröfur Adebayor gera málið erfitt
Athugasemdir
banner
banner
banner