Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   fim 09. ágúst 2012 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Eysteinn: Með ólíkindum að Þórsarinn sé að kvarta undan dómgæslu
Eysteinn Húni Hauksson.
Eysteinn Húni Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Menn voru að gera það sem fyrir þá var lagt og menn fengu klárlega færi til að skora," sagði Eystienn Húni Hauksson þjálfari Hattar eftir 1-2 tap heima gegn Þór í gærkvöldi.

,,Þetta er gríðarlega svekkjandi, sérstaklega gagnvart þessum þolinmóðu áhorfendum okkar sem fjölmenntu og stóðu sig frábærlega í kvöld og eru búnir að standa vel við bakið á okkur þó það hafi gengið illa að safna stigum og sigrum. Að ná ekki allavega einu stigi út úr þessu. Ég er algjörlega orðlaus."

Srdjan Rajkovic markvörður Þórs átti að fá að líta rauða spjaldið í lok leiksins þegar hann varði með höndum fyrir utan teig og varði svo vítaspyrnu frá Högna Helgasyni framherja Hattar síðar í leiknum.

,,Ég segi það bara að mér finnst með ólíkindum að ágætur vinur minn, Þórsarinn, sé að kvarta undan dómgæslunni því að það á klárlega að vera rautt spjald. Plús það að Orri stórvinur minn er klárlega með tvö gulra spjalda brot í fyrri hálfleik en fær bara eitt. Það virðist vera eitthvað mottó hjá dómaranum að spjalda ekki á fyrstu fimm mínútunum. Þetta er búið að gerast trekk í trekk í sumar."

,,Ef hann tekur hann með hendinni þarna fyrir utan teig þá hlýtur það að vera rautt spjald. Ég veit allavega ekki betur."


Nánar er rætt við Eystein í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner