,,Við ætluðum að berjast, liggja til baka og beita skyndisóknum og mér fannst það ganga þokkalega upp," sagði Elmar Bragi Einarsson leikmaður Hattar eftir 1-2 tap gegn Þór í 1. deildinni í gærkvöldi.
,,Við vorum að fá á okkur klaufaleg tvö mörk, kannski bara nýr markmaður, og þurfti að tala betur saman, ég veit það ekki."
Höttur vann sig til baka í leikinn, jafnaði í 1-1 með marki úr vítaspyru en töpuðu svo.
,,Við vorum aldrei sáttir við jafntefli. Við ætluðum allan tímann að taka þrjú stig í þessum leik og það held ég að hafi sést síðasta korterið þegar allir voru að vinna eins og 'motherfuckerar' um völlinn."
Strdjan Rajkovic markvörður Hattar átti að fá að líta rauða spjldið í lokin þegar hann handlék boltann fyrir utan teig, en fékk ekki, og varði víti nokkrum mínútum síðar.
,,Persónulega skil ég ekki alveg þegar markmaðurinn skutlar sér með báðar hendurnar fyrir skot sem er á leiðinni inn í markið, hvernig hann getur bara fengið gult spjald. Ég get ekki skilið þennan dóm."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir