Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. ágúst 2012 20:24
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild: KA lagði Fjölni
Mynd: Reynir Pálsson
KA 2 - 1 Fjölnir
1-0 Jóhann Óli Þorbjörnsson ('8, sjálfsmark)
1-1 Ásgeir Aron Ásgeirsson ('17)
2-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('37)

KA lagði Fjölni í eina leik dagsins í 1. deild karla og eru nú aðeins þrjú stig sem skilja liðin að í efri hluta deildarinnar.

Jóhann Óli Þorbjörnsson skoraði sjálfsmark á áttundu mínútu leiksins en Ásgeir Aron Ásgeirsson jafnaði leikinn stuttu síðar.

Hallgrímur Steingrímsson kom heimamönnum aftur yfir seint í fyrri hálfleik og meira var ekki skorað á Akureyrarvelli.

Fjölnir hefði getað komist á toppinn með sigri í dag en liðið er í öðru sæti deildarinnar þremur stigum á eftir Víking Ólafsvík.
Slapp
banner
banner