Þjálfari Roma: Bannið á Conte er ekki nóg
Zdenek Zeman, þjálfari AS Roma á Ítalíu, segir tíu mánaða bannið á Antonio Conte, þjálfara Juventus ekki vera nærri því nóg.
Conte fékk tíu mánaða bann fyrir þátt sinn í veðmálahring, en hann getur þjálfað liðið áfram, þó svo hann megi ekki taka þátt á leikdegi. Þá sér Massimo Carrera um liðið, en hann hefur þjálfað unglingalið félagsins um tíma.
Zeman, sem þjálfar Roma er ekki sáttur við refsinguna sem Conte fékk og segir að ítalski þjálfarinn eigi ekki að fá að þjálfa liðið.
,,Leikmaður í banni má æfa, en mér finnst að þjálfari sem er í banni megi ekki þjálfa liðið," sagði Zeman.
,,Ég hef ekki lesið allan dóminn, en ef fólk vill minnka þetta fyrirbæri í framtíðinni þá þurfa dómarnir að vera harðari," sagði Zeman að lokum.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar