Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. ágúst 2012 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Ekkert samkomulag við Chelsea um Moses
Victor Moses, leikmaður Wigan Athletic á Englandi, er ekki búinn að ná samningum við Chelsea, en þetta segir umboðsmaður hans í dag.

Moses, sem er 21 árs gamall hefur verið orðaður við Chelsea í allt sumar, en síðustu daga hafa fréttir þess efnis borist að hann sé búinn að semja við félagið og aðeins eigi eftir að ganga frá smáatriðum.

Umboðsmaður hans segir það þó ekki rétt og að engir samningar séu í höfn, en talið hefur verið að kaupverðið nemi um níu milljónir punda.

,,Fréttir þess efnis að Moses sé farinn til Chelsea fyrir 9 milljónir punda eru ekki sannar," sagði Neil Fewings, umboðsmaður hans.
Slapp
banner
banner