Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   sun 12. ágúst 2012 15:48
Brynjar Ingi Erluson
17 ára leikmaður skoraði í sigri Liverpool á Leverkusen
Liverpool FC 3 - 1 Bayer Leverkusen
1-0 Raheem Sterling ('3 )
2-0 Lucas Leiva ('30 )
3-0 Andy Carroll ('65 )
3-1 Sidney Sam ('75 )

Liverpool vann Bayer Leverkusen með þremur mörkum gegn einu er liðin mættust í æfingaleik á Anfield í dag, en þetta var síðasti æfingaleikur enska liðsins fyrir komandi tímabil.

Heimamenn byrjuðu betur og komust yfir strax á 3. mínútu, en þar var að verki Raheem Sterling, sem er einungis 17 ára gamall vængmaður. Hann fékk þá boltann vinstra megin í teignum og keyrði inn áður en hann lét vaða á markið.

Lucas Leiva bætti við öðru marki á 30. mínútu eftir sendingu frá Luis Suarez og stóðu leikar því 2-0 í hálfleik.

Andy Carroll, sem hefur verið sterklega orðaður frá Liverpool í sumar, bætti við þriðja marki liðsins um miðjan síðari hálfleik áður en Sidney Sam minnkaði muninn fyrir þýska liðið. Lokatölur því 3-1 Liverpool í vil, en liðið á fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni gegn WBA þann 18. ágúst.
Slapp
banner
banner