Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. ágúst 2012 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Danmörk: Ragnar hafði betur gegn Aroni og félögum
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Einn leikur fór fram í danska boltanum nú í kvöld, en þar tókst FC Kobenhavn að sigra AGF frá Árósum með þremur mörkum gegn engu.

Cesar Santin skoraði tvívegis fyrir FCK og þá skoraði Andreas Cornelius eitt mark í öruggum sigri.

Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá FCK og þá lék Aron Jóhannsson fyrstu 66 mínúturnar í fremstu víglínu hjá AGF.

Sölvi Geir Ottesen var fjarri góðu gamni í dag hjá FCK, en hann er frá vegna meiðsla og verður því ekki með íslenska landsliðinu gegn Færeyjum á miðvikudag.
Slapp
banner
banner
banner