Juventus í viðræðum við Athletic Bilbao um Llorente
Ítölsku meistararnir í Juventus eru í viðræðum við spænska framherjann Fernando Llorente hjá Athletic Bilbao.
Juventus hefur verið að leita sér að framherja að undanförnu, en bæði Robin van Persie hjá Arsenal og Luis Suarez hjá Liverpool hafa verið efstir á lista.
Suarez framlengdi þó samning sinn við Liverpool á dögunum og þá er talið að Van Persie velji Manchester City eða Manchester United fram yfir ítalska félagið og jafnvel að hann verði áfram hjá Arsenal.
Giuseppe Marotta, yfirmaður íþróttamála hjá Juventus, hefur þó staðfest að félagið sé í viðræðum við Athletic Bilbao á Spáni um að festa kaup á spænska framherjanum Fernando Llorente en hann segir viðræður þó erfiðar.
,,Við erum í viðræðum um að fá Fernando Llorente hingað, en þetta er ekki mjög auðvelt þar sem Athletic vill ekki selja leikmanninn," sagði Marotta.
Bilbao hefur þó boðið til blaðamannafundar á morgun og gæti því eitthvað verið að gerast í þessu máli.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar