Heimild: Heimasíða Manchester City
Manchester City hefur keypt miðjumanninn Jack Rodwell frá Everton en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 21 árs gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning við Manchester City.
Þessi 21 árs gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning við Manchester City.
,,Ég hlakka til að spila bestu leikmönnum í heimi og halda áfram að bæta mig," sagði Rodwell.
,,Vinnan byrjar í dag og ég vil hjálpa félaginu að vinna fleiri titla. Tímabilið hefur byrjað mjög vel með sigrinum í Samfélagsskildinum."
Rodwell fær treyju númer 17 hjá Manchester City en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Southampton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi.

