Samúel Samúelsson, formaður knattspyrnudeildar BÍ/Bolungarvíkur, segir að enginn leikmaður liðsins hafi verið með kynþáttafordóma í garð Chukwudi Chijindu framherja Þórs í leik liðanna í kvöld.
Chijindu fékk rauða spjaldið eftir 3-2 sigur Þórs í kvöld eftir að honum og Mark Tubæk lenti saman.
Chijindu fékk að líta rauða spjaldið eftir að leiknum lauk. Hafsteinn Rúnar Helgason, BÍ/Bolungarvík, fékk einnig rautt fyrir þátt sinn í látunum og þeir Guiseppe Funicello og Tubæk fengu áminningu.
Eftir leikinn sakaði Chijindu leikmenn BÍ/Bolungarvíkur um að hafa verið með kynþáttafordóma í sinn garð.
,,Það er sorglegt að þessir leikmenn þurfi að nota niðrandi ummæli sem vísa að kynþætti mínum í miðjum leik. Það hefur ekki áhrif á mig, þetta er bara olía á eldinn," sagði Chijindu á Twitter eftir leikinn í kvöld.
Samúel segir að hvorki Tubæk né aðrir leikmenn BÍ/Bolungarvíkur hafi verið með kynþáttafordóma í kvöld.
,,Við vísum því alfarið á bug að nokkur leikmaður BÍ/Bolungarvíkur hafi verið með kynþáttafordóma gegn þessum leikmanni," sagði Samúel við Fótbolta.net seint í kvöld.
,,Við erum með leikmenn sem eru dökkir á hörund í liði okkar og höfum verið með í gegnum tíðina. Við erum ekki sáttir með svona ásakanir og vísum þeim alfarið á bug. Þessi umræddi leikmaður fór alfarið yfir strikið gegn leikmanni okkar og sagði ljót orð sem ekki eru við hæfi á prenti."




