Veigar Páll Gunnarsson er mættur til Íslands til að styðja sína menn í Stjörnunni gegn KR í úrslitum Borgunarbikarsins í dag.
Veigar Páll samdi í fyrradag við Stabæk í Noregi en hann gerði eins og hálfs árs samning við félagið.
Eftir að þeim samningi lýkur ætlar Veigar að koma heim og leika með uppeldisfélagi sínu Stjörnunni árið 2014.
Til að undirstrika það þá skrifaði Veigar undir samning þess efnis við Silfurskeiðina, stuðningsmannasveit Stjörnunnar, í upphitun fyrir leikinn gegn KR í dag.
Bikarúrslitaleikur Stjörnunnar og KR hefst á Laugardalsvelli klukkan 16:00 í dag.
Athugasemdir