Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 19. ágúst 2012 14:41
Brynjar Ingi Erluson
Jóhann Berg kom inná í sigri AZ á Heracles
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
AZ Alkmaar vann góðan 3-1 sigur á Heracles er liðin mættust í hollensku deildinni fyrr í dag.

Jóhann Berg Guðmundsson byrjaði á varamannabekknum að þessu sinni, en hann fékk að spreyta sig síðustu 25 mínútur leiksins.

Hann byrjaði einnig á bekknum í síðasta leik gegn Ajax er liðið gerði jafntefli, en þá kom hann við sögu á svipuðum tíma.

Þjálfari AZ hefur þegar lýst yfir því að Jóhann fái fleiri sénsa með liðinu í ár og að hann komi til með að spila stóra rullu í liðinu, en AZ endaði í öðru sæti hollensku deildarinnar í fyrra, á eftir Ajax.
Slapp
banner
banner
banner