Lokaleikur fyrstu umferðar í ensku úrvalsdeildinni fer fram í kvöld klukkan 19:00 þegar Everton tekur á móti Manchester United.
Stuðningsmenn Manchester United geta vart beiðið eftir að sjá Robin van Persie spila sinn fyrsta leik fyrir félagið en Hollendingurinn varð markakóngur deildarinnar á síðustu leiktíð með Arsenal en gekk á dögunum til liðs við Rauðu djöflana.

Talið er að hann muni leiða sóknarlínuna ásamt Wayne Rooney en saman geta þeir myndað eitt hættulegasta sóknarpar heims og gaman verður að fylgjast með Japananum Shinji Kagawa í holunni fyrir aftan sóknina.
Everton átti gott tímabil á síðustu leiktíð og endaði í sjöunda sæti en liðið stefnir á að endurtaka leikinn. Félagið fékk til sín Steven Naismith frá Rangers og Steven Pienaar frá Tottenham í sumar.
Leikur dagsins:
19:00 Everton - Manchester United (Beint á Stöð 2 Sport 2)