Heimild: Heimasíða Reading
Reading hefur gert eins árs samning við markvörðinn Stuart Tyalor en hann kemur frítt frá Manchester City.
Taylor, sem er 31 árs, hóf feril sinn hjá Arsenal en hann hefur einnig leikið með Aston Villa.
Taylor, sem er 31 árs, hóf feril sinn hjá Arsenal en hann hefur einnig leikið með Aston Villa.
Danski markvörðurinn Mikkel Andersen hefur farið frá Reading til Portsmouth á láni í einn mánuð.
Taylor mun því sjá um að veita Adam Federici samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Reading.
Federici stóð sig mjög vel á síðasta tímabili en hann gerði sig sekan um slæm mistök í 1-1 jafnteflinu gegn Stoke um helgina.




