Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 20. ágúst 2012 18:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Conor Sammon til Derby (Staðfest)
Derby hefur keypt framherjann Conor Sammon frá Wigan en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Sammon skrifaði undir fjögurra ára samning við Hrútana en frá þessu var greint í dag.

Sammon kom til Wigan frá Kilmarnock í janúar 2011 og skoraði eitt mark í 32 leikjum í ensku úrvalsdeildinni en í 23 af þessum leikjum kom hann inn á sem varamaður.

Nigel Clough, stjóri Derby, hafði áhuga á að fá Sammon til Derby á sínum tíma og hann hefur loksins krækt í leikmanninn.

,,Hann verður lykilmaður fyrir okkur og við vitum að hann getur skorað mörk þegar hann spilar reglulega," sagði Clough.
Slapp
banner
banner