Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 20. ágúst 2012 17:30
Elvar Geir Magnússon
Heiðar Geir fór í aðgerð - Frá í þrjá mánuði
Heiðar Geir í leik með Fram áður en hann fór út.
Heiðar Geir í leik með Fram áður en hann fór út.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Heiðar Geir Júlíusson, leikmaður Ängelholms í sænsku B-deildinni, er kominn á hækjur eftir að hafa gengist undir aðgerð.

„Þetta var aðgerð á hné þar sem þurfti að sauma eina sin saman sem fór í sundur. Læknarnir sögðu að allt hafi gengið vel og ég muni ná fljótum bata, þetta er ekki jafn alvarlegt og krossband eða liðband," segir Heiðar Geir.

Hann verður frá í þrjá mánuði en fær að byrja að æfa á fullu aftur þann 15. nóvember. Hann hefur því leikið sinn síðasta leik á tímabilinu nema fari svo að lið hans komist í umspil.

„Okkur gekk vel fyrir hlé, vorum þá í þriðja sæti sem gefur umspil um sæti í úrvalsdeild. Við erum búnir að tapa síðustu þremur leikjum svo við erum komnir í 4.-5. sæti í dag."

„Núna á miðvikudaginn er mjög mikilvægur leikur á móti Falkenberg sem við verðum að vinna til að halda í vonina um þetta 3. sæti. Meiðslin komu á versta tíma þar sem ég var búinn að skora 5 mörk í síðustu 4 leikjunum fyrir hlé og er að verða samningslaus eftir tímabilið," segir Heiðar.

„En svona er boltinn og maður kemur bara sterkari til baka og sér hvar maður endar í janúar."
Slapp
banner
banner