Þremur leikjum var að ljúka í Pepsi-deild karla þar sem Selfoss átti ekki í erfiðleikum með að valta yfir Grindavík í fallbaráttuleik dagsins.
Fylkir lagði Val á Hlíðarenda á meðan Keflavík lagði ÍBV í Vestmannaeyjum en ÍBV hefði komist í annað sæti deildarinnar með sigri í dag.
Fylkir lagði Val á Hlíðarenda á meðan Keflavík lagði ÍBV í Vestmannaeyjum en ÍBV hefði komist í annað sæti deildarinnar með sigri í dag.
Selfyssingar virðast vera komnir í góðan gír í fallbaráttunni en þeir lögðu Grindvíkinga með fjórum mörkum gegn engu á Grindavíkurvelli og eru því komnir úr fallsæti ef Fram tapar gegn Breiðablik á heimavelli.
Guðmundur Steinarsson skoraði eina mark Keflvíkinga gegn ÍBV í Vestmannaeyjum en Frans Elvarsson var rekinn af velli undir lokin.
Fylkir hafði þá betur gegn Val á Hlíðarenda þar sem Rúnar Már Sigurjónsson skoraði eina mark Valsara.
Grindavík 0 - 4 Selfoss
0-1 Jón Daði Böðvarsson ('20)
0-2 Jon Andre Royrane ('30)
0-3 Tómas Leifsson ('48)
0-4 Viðar Örn Kjartansson ('87)
ÍBV 0 - 1 Keflavík
0-1 Guðmundur Steinarsson ('11)
Rautt spjald: Frans Elvarsson, Keflavík ('80)
Valur 1 - 2 Fylkir
0-1 Jónas Tór Næs ('5, sjálfsmark)
0-2 Elís Rafn Björnsson ('25)
1-2 Rúnar Már Sigurjónsson ('51)


