Everton 1 - 0 Manchester United
1-0 Marouane Fellaini ('57)
1-0 Marouane Fellaini ('57)
Everton fékk Manchester United í heimsókn í eina leik dagsins í ensku Úrvalsdeildinni.
Leikurinn var frekar jafn framan af en gestirnir héldu boltanum mun meira á meðan Everton fékk fleiri marktækifæri og var mun hættulegra í sóknum sínum.
Staðan var markalaus í hálfleik en belgíski miðjumaðurinn Marouane Fellaini kom Everton yfir snemma í síðari hálfleik með góðu skallamarki.
Gestirnir gerðu nokkrar sóknarskiptingar í síðari hálfleik og kom Robin van Persie inná þegar rúmlega tuttugu mínútur voru eftir af leiknum.
Rauðu djöflunum tókst ekki að jafna leikinn og þrjú mikilvæg stig komin í hús fyrir David Moyes og hans menn á Goodison Park.




