þri 21.ágú 2012 05:55
Leikir dagsins hér heima - Pepsi kvenna og 1. deild karla
Karlalið Þórs ætlar líka að hampa bikar í sumar. Þeir eru á toppi 1. deildar karla og mæta botnliði ÍR í kvöld. Þessi mynd er úr fyrri leik liðanna.
Spennan fer minnkandi með hverri umferðinni í Pepsi-deild kvenna þar sem Þór/KA siglir í átt að sínum fyrsta Íslandsmeistaratitili. Liðið er á toppnum með sex stiga forskot á næsta lið sem er Stjarnan nú þegar fimm umferðir eru eftir.
Þór/KA fær Aftureldingu sem er í bullandi fallbaráttu í heimsókn en stórleikur verður í Kópavoginum þar sem Stjarnan fær Breiðablik í heimsókn. Botnlið KR rær lífróður og verður að vinna FH sem heimsækir þær í Frostaskjólið og Fylkir sem er komið í fallsæti mætir stórliði Vals. Síðasti leikurinn er svo mikilvægur leikur Selofss og ÍBV. Selfoss er í fallbaráttunni, tveimur stigum frá fallsæti en ÍBV á enn möguleika á titli.
Í 1. deild karla heldur mögnuð spenna áfram um hvaða lið fara upp og hvaða lið falla. Það má fyrirfram búast við ójöfnum leik í Breiðholtinu þegar botnlið ÍR tekur á móti toppliði Þórs. Ólafsvíkingar sem eru í 2. sæti með 28 stig taka á móti Haukum sem eru fjórum stigum frá þeim og verða að vinna ætli þeir sér möguleika á að fara upp. Þróttur er með jafnmörg stig og Haukar og sækir Ísfirðinga heim í dag.
Það er oftast mikið skorað þegar Fjölnir og Leiknir mætast og engin ástæða til að búast við öðru í kvöld. Fjölnir hefur sett sér markmið að enda mótið í 2. sæti og eru aðeins tveimur stigum frá því en Leiknir í þriðja neðsta sæti og verður að safna stigum til að falla ekki. Þá tekur KA á móti Hetti og Víkingur á móti Tindastóli.
Pepsi-deild kvenna:
18:00 Selfoss - ÍBV (Selfossvöllur)
18:30 Þór/KA - Afturelding (Þórsvöllur)
18:30 KR - FH (KR-völlur)
18:30 Valur - Fylkir (Vodafonevöllurinn)
19:15 Stjarnan - Breiðablik (Samsung völlurinn)
1. deild karla:
18:00 BÍ/Bolungarvík - Þróttur R. (Torfnesvöllur)
18:30 Víkingur Ó. - Haukar (Ólafsvíkurvöllur)
18:30 Fjölnir - Leiknir R. (Fjölnisvöllur)
18:30 Víkingur R. - Tindastóll (Víkingsvöllur)
18:30 KA - Höttur (Akureyrarvöllur)
18:30 ÍR - Þór (Hertz völlurinn)
3. deild karla:
19:00 Hvíti riddarinn - Víðir (Varmárvöllur)
19:00 Snæfell - Grundarfjörður (Stykkishólmsvöllur)
19:00 Þróttur V. - Kári (Vogavöllur)
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Þór | 22 | 16 | 2 | 4 | 40 - 20 | +20 | 50 |
| 2. Víkingur Ó. | 22 | 13 | 3 | 6 | 36 - 21 | +15 | 42 |
| 3. Þróttur R. | 22 | 9 | 6 | 7 | 34 - 26 | +8 | 33 |
| 4. KA | 22 | 9 | 6 | 7 | 34 - 30 | +4 | 33 |
| 5. Haukar | 22 | 9 | 6 | 7 | 23 - 25 | -2 | 33 |
| 6. Víkingur R. | 22 | 8 | 7 | 7 | 34 - 31 | +3 | 31 |
| 7. Fjölnir | 22 | 7 | 8 | 7 | 39 - 26 | +13 | 29 |
| 8. Tindastóll | 22 | 8 | 3 | 11 | 34 - 42 | -8 | 27 |
| 9. BÍ/Bolungarvík | 22 | 6 | 8 | 8 | 31 - 37 | -6 | 26 |
| 10. Leiknir R. | 22 | 6 | 7 | 9 | 33 - 36 | -3 | 25 |
| 11. Höttur | 22 | 5 | 6 | 11 | 30 - 41 | -11 | 21 |
| 12. ÍR | 22 | 4 | 2 | 16 | 19 - 52 | -33 | 14 |
Athugasemdir


