Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   þri 21. ágúst 2012 06:00
Elvar Geir Magnússon
Finnskur dómari flautar í Víkinni í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Eins og undanfarin ár hafa knattspyrnusambönd Norðulandanna haldið úti verkefni sem miðast við dómaraskipti á milli landanna.

Í kvöld munu dómarar frá Finnlandi starfa á leik Víkinga frá Reykjavík og Tindastóls í 1. deildinni.

Dómarinn heitir Mikko Lehtola og annar aðstoðardómari hans er Olli Jantunen. Hinn aðstoðardómarinn er hinsvegar íslenskur og heitir Birkir Sigurðarson.

Síðar í mánuðinum munum við svo fá heimsókn frá dómurum frá Færeyjum og Noregi sem einnig munu starfa á leikjum hér á landi.

Dómarar í 1. deildinni í kvöld:
Víkingur R - Tindastóll: Mikko Lehtola
BÍ/Bolungarvík - Þróttur: Valgeir Valgeirsson
Víkingur Ó. - Haukar: Þórður Már Gylfason
Fjölnir - Leiknir: Þóroddur Hjaltalín Jr.
KA - Höttur: Pétur Guðmundsson
ÍR - Þór: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Slapp
banner