David Silva á förum frá Man City?
Þá er komið að daglegum slúðurpakka úr enska boltanum en það er nóg um að vera þar þessa dagana.
Manchester City gæti misst David Silva en samningaviðræður hans ganga ekki vel. (Daily Mail)
Silva vill fá 200 þúsund pund í vikulaun eins og launahæstu leikmenn City. (Daily Telegraph)
Liverpool ætlar að segja Andy Carroll að ákveða framtíð sína fyrir lok vikunnar en Tottenham hefur sýnt honum áhuga. (Daily Mirror)
Daniele De Rossi verður líklega áfram hjá Roma þrátt fyrir áhuga Manchester City. (Daily Star)
West Ham er að gefast upp á að reyna að fá Matt Jarvis kantmann Wolves en þess í stað ætlar félagið að kaupa Razak Boukari frá Rennes. (Evening Standard)
QPR hefur áhuga á Michael Dawson varnarmanni Tottenham. (The Times)
Tom Huddlestone gæti yfirgefið Tottenham á láni en Stoke hefur áhuga á honum. (The Guardian)
Tottenham hefur ekki áhuga á Marouane Chamakh framherja Arsenal. (Talksport)
Tottenham ætlar hins vegar að reyna að fá Miralem Pjanic miðjumann Roma áður en félagaskiptaglugginn lokar. (Evening Standard)
Tottenham er einnig að íhuga tilboð í Edin Dzeko framherja Manchester City þar sem illa gengur að ná samningum við Emmanuel Adebayor. (Daily Mirror)
Adebayor vonast sjálfur til að fara til Tottenham á fimm milljónir punda síðar í vikunni. (The Sun)
Fulham er í viðræðum um að kaupa Eduardo fyrrum framherja Arsenal frá Shakhtar Donetsk á sjö milljónir punda en hann á að fylla skarð Clint Dempsey. (Daily Star)
Zenit St Pétursborg vonast til að fá Andrey Arshavin frá Arsenal en enska félagið vill fá tíu milljónir punda fyrir leikmanninn. (The Times)
Sunderland vonast til að fá Adam Johnson frá Manchester City, Steven Fletcher frá Wolves og Martin Olsson frá Blackburn á samtals 25 milljónir punda. (The Sun)
Liverpool er í bílstjórasætinu í baráttunni um Adam Johnson. (The Independent)
Southampton vonast til að kaupa Gaston Ramirez kantmann Bologna og Matt Phillips frá Blackpool á samtals 18 milljónir punda. (Daily Mirror)
Mark Bunn hefur óskað eftir sölu frá Blackburn en Norwich hefur áhuga á þessum 27 ára gamla markverði. (Lancashire Telegraph)
Wolves hefur sagt Steven Fletcher og Matt Jarvis að sætta sig við að þeir fái ekki að fara frá félaginu í sumar. (Express and Star)
Roberto Martinez, stjóri Wigan, segist hafa hafnað Liverpool í sumar. (Daily Mirror)
Sergio Aguero ætlar að snúa aftur í september eftir hnémeiðslin sem hann varð fyrir gegn Southampton um helgina. (Manchester Evening News)
Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar



