mán 27. ágúst 2012 18:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Steinþór skoraði og lagði upp
Steinþór Freyr Þorsteinsson.
Steinþór Freyr Þorsteinsson.
Mynd: Heimasíða Sandnes Ulf
Steinþór Freyr Þorsteinsson var í stuði þegar Sandnes Ulf lagði Sogndal 3-1 í norsku úrvalsdeildinni í gær.

Steinþór Freyr skoraði annað mark Sandnes Ulf í leiknum með skalla eftir aukaspyrnu í síðari hálfleik.

Hann lagði síðan upp þriðja mark liðsins þegar hann átti frábæra sendingu á Thorstein Helstad sem skallaði í netið.

Steinþór fékk síðan heiðursskiptingu á 90. mínútu en inn á í hans stað kom Arnór Ingvi Traustason í sínum fyrsta leik með Sandnes Ulf.

Með því að smella á tengilinn hér að neðan má sjá myndband úr leiknum. Mark Steinþórs kemur eftir rúmar þrjár mínútur og markið sem hann lagði upp kemur eftir rúmar fjórar mínútur.

Smelltu hér til að sjá myndbandið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner