Bestur í 1. deild: Getum treyst á okkur sjálfa
Bestur í 10. umferð - Ólafur Hrannar Kristjánsson (Leiknir R.)
Tíundu umferðinni í fyrstu deild karla lauk í gærkvöldi þegar Þór sigraði Tindastól 4-0. Ólafur Hrannar Kristjánsson, framherji Leiknis, er leikmaður tíundu umferðar en hann skoraði þrennu í 6-1 sigri liðsins á Hetti í síðasta mánuði.
,,Þetta er leikur þar sem við vorum að slútta færunum. Við höfum verið að fá mikið af færum og klúðra mikið af þeim. Það er kannski ástæðan fyrir því að við erum í stöðunni sem við erum í núna í dag," sagði Ólafur Hrananr við Fótbolta.net í dag.
,,Í einhverjum leikjum hefur hugarfarið líka verið að klikka en við höfum oft á tíðum verið að spila vel og verið betri aðilinn í leikjum. Það vantar einhvern herslumun inn á milli til að klára leiki og annað eins."
,,Þessir jöfnu leikir sem við höfum verið að spila við Hauka, Víking, Fjölni og fleiri lið hafa ekki verið að falla með okkur. Við höfum verið að tapa þessum leikjum og ná í mesta lagi einu stigi en það telur ekki nógu mikið í þessari baráttu sem við erum í."
Leiknismenn eru með 16 stig í næstneðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Hetti. Þessi lið eiga eftir að mætast aftur í sumar og Ólafur Hrannar er bjartsýnn á að Leiknismenn nái að halda sér uppi í fyrstu deildinni.
,,Það eru allir bjartsýnir og liðið er búið að þjappa sér vel saman. Við vorum í erfiðri stöðu í fyrra þar sem við vorum búnir að missa þetta úr eigin höndum og þurftum að treysta á önnur úrslit en núna getum við treyst á okkur sjálfa í síðustu leikjunum."
Næsti leikur Leiknis er gegn Tindastóli á Sauðárkróki á laugardag en síðarnefnda liðið er í níunda sæti, fimm stigum á undan Breiðhyltingum.
,,Það er hrikalega mikilvægur leikur. Ef við töpum honum þá erum við búnir að grafa ansi djúpa gröf fyrir okkur. Ef við vinnum hins vegar þá tökum við Tindastól aftur inn í pakkann."
Ólafur Hrannar er markahæstur í fyrstu deildinni með níu mörk og hann vonast að sjálfsögðu til að enda markahæstur.
,,Ef við náum að halda okkur uppi þá er mér alveg sama hvernig þetta endar hjá mér. Það yrði klárlega stór plús að ná í gullskóinn en aðalatriðið er að Leiknir haldi sér í fyrstu deildinni," sagði Ólafur Hrannar að lokum.
Sjá einnig:
Leikmaður 18. umferðar - Elvar Ægisson (Höttur)
Leikmaður 17. umferðar - Ármann Pétur Ævarsson (Þór)
Leikmaður 16. umferðar - Davíð Einarsson (Höttur)
Leikmaður 15. umferðar - Mark Tubæk (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 14. umferðar - Halldór Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 13. umferðar - Evan Schwartz (Víkingur R.)
Leikmaður 12. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 11. umferðar - Chukwudi Chijindu (Þór)
Leikmaður 10. umferðar - Ólafur Hrannar Kristjánsson (Leiknir R.)
Leikmaður 9. umferðar - Dominic Furness (Tindastóll)
Leikmaður 8. umferðar - Halldór Smári Sigurðarson (Víkingur R.)
Leikmaður 7. umferðar - Darren Lough (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Björn Pálsson (Víkingur Ó.)
Leikmaður 5. umferðar - Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Leikmaður 4. umferðar - Nigel Quashie (ÍR)
Leikmaður 3. umferðar - Ásgeir Aron Ásgeirsson (Fjölnir)
Leikmaður 2. umferðar - Robin Strömberg (Þór)
Leikmaður 1. umferðar - Birkir Pálsson (Höttur)

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
12:00