Kristinn Jakobsson, okkar fremsti dómari, verður við stjórnvölinn í Frakklandi á morgun, fimmtudaginn 30. ágúst, þegar hann dæmir leik Marseille og FK Sheriff frá Moldavíu í Evrópudeild UEFA.
Þetta er síðari leikur félaganna í umspili fyrir riðlakeppni Evrópudeildarinnar en Marseille vann fyrri leikinn í Moldavíu, 1 - 2.
Kristni til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson og fjórði dómari verður Magnús Þórisson.
Í næstu viku mun Kristinn svo dæma leik í undankeppni HM.



