Julio Cesar kominn til QPR (Staðfest)
QPR hefur klárað kaupin á markverðinum Julio Cesar frá Inter Milan.
Þessi brasilíski landsliðsmaður skrifaði undir fjögurra ára samning á Loftus Road.
Hann hafði verið hjá Inter í 7 ár og leikið 299 leiki fyrir félagið. Áður var hann í herbúðum Chievo.
Hjá Inter vann hann allt sem hægt var að vinna og varð meðal annars ítalskur meistari fimm sinnum. Einnig var hann lykilleikmaður í liði Inter sem varð Evrópumeistari 2010.
Hjá QPR mun hann væntanlega taka sæti Robert Green í rammanum, en sá hefur ekki byrjað vel eftir að hafa verið fenginn til liðsins í sumar.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
12:00