Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 29. ágúst 2012 22:31
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Stoke gerir tilboð í Charlie Adam
Stoke hefur lagt fram fimm milljóna punda tilboð í Charlie Adam miðjumann Liverpool.

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vill selja Adam til að afla fjár fyrir kaupum á Clint Dempsey leikmanni Fulham.

Adam, sem er 26 ára, vill sjálfur vera áfram hjá Liverpool en nú vonast Stoke til að krækja í hann áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Adam kom til Liverpool frá Blackpool í fyrrasumar á níu milljónir punda en hann skoraði tvö mörk í 37 leikjum á síðasta tímabili.

Hann er ekki eini leikmaðurinn sem gæti verið á förum frá Liverpool því Jay Spearing er líklega á leið til Wolves eða Bolton á láni.
Slapp
banner
banner