Kvennalið Fram sem leikur í 1. deild kvenna leikur heimaleik sinn gegn Þrótti í umspili um sæti í Pepsi-deild kvenna á Laugardalsvelli.
Liðið hefur staðið sig mjög vel í sumar og unnið 13 leiki og tapað einum í 1. deildinni. Þessa sjö heimaleiki sína spiluðu þær á Fram völlunum í Safamýri og Úlfarsárdal.
Þær eru komnar í undanúrslit 1. deildar kvenna gegn Þrótti en liðin sem vinna úrslitaleikina tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni og leika svo til úrslita um sigur í deildinni.
Fyrri leikur Fram og Þróttar fer fram á Valbjarnarvelli á laugardaginn en sá síðari á Laugardalsvelli á þriðjudaginn klukkan 18:30.
Hin viðureignin er viðureign Fjölnis og HK/Víkings.



