Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 30. ágúst 2012 10:15
Elvar Geir Magnússon
Dzeko til Arsenal í skiptum fyrir Walcott?
Powerade
Það styttist í að glugganum verði lokað og skellt í lás. Það er því eðlilega líf og fjör í slúðurblöðunum ensku.

Edin Dzeko gæti farið til Arsenal sem hluti af skiptisamning þar sem Manchester City reynir að fá Theo Walcott frá Lundúnafélaginu. (Metro)

Porto hefur hafnað 39,5 milljón punda tilboði frá Zenit í Pétursborg í Hulk. Þessi 26 ára sóknarmaður er einnig á óskalista Chelsea. (TalkSport)

West Ham ætlar að gera eina tilraun í viðbót til að krækja í Andy Carroll frá Liverpool áður en félagaskiptaglugganum verður lokað. Það gæti gert Liverpool kleift að bjóða í Walcott. (Daily Mail)

Carroll verður ekki í hópi Liverpool í Evrópudeildarleiknum gegn Hearts. Mun það auka á orðróminn um að hann fari frá félaginu. (Daily Mirror)

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vill að Carroll sætti sig við að tími hans á Anfield sé á enda en Rodgers ætlar að reyna að fá Clint Dempsey og Walcott. (The Times)

Liverpool vill kaupa sóknarmanninn Fernando Llorente, 27 ára, frá Athletic Bilbao ef félaginu tekst að selja Carroll fyrir lok gluggans. (The Sun)

Hamburg ætlar að reyna allt sem félagið getur til að ganga frá kaupum á Rafael van der Vaart frá Tottenham áður en glugganum verður lokað. (Metro)

Tottenham og Chelsea berjast um franska sóknarmanninn Loic Remy hjá Marseille. (Daily Express)

Manchester City ætlar að gera atlögu að því að fá Maicon áður en glugganum verður lokað. (Guardian)

Fulham gerði misheppnaða tilraun til að krækja í miðjumanninn Mark Noble frá West Ham en félagið reynir að fylla í skarðið sem myndaðist þegar Moussa Dembele fór til Tottenham. (Goal.com)

Manchester City hefur gert formlegt 6,2 milljóna punda boð í Scott Sinclair hjá Swansea. (Daily Mail)

Swansea hefur fengið samþykkt 5,5 milljóna punda boð í vængmanninn Pablo Hernandez hjá Valencia. (Daily Mirror)

Viðræður AC Milan við Manchester City um hugsanleg kaup á Nigel De Jong halda áfram. (Football Italia)

Malaga er að vinna kapphlaup við Real Betis um Roque Santa Cruz, sóknarmann Manchester City, samkvæmt fréttum frá Spáni. (TalkSport)

Stephen Ireland er að fá nýjan samning frá Aston Villa. (Daily Mail)

John Terry segist vera klár í slaginn fyrir leiki enska landsliðsins gegn Moldavíu og Úkraínu eftir að hafa misst af sigri Chelsea gegn Newcastle vegna meiðsla. (Daily Mirror)

Jack Butland og Alex Oxlade-Chamberlain verða í landsliðshópi Englands sem tilkynntur verður í dag. (Independent)

Joe Allen hefur heillað Steven Gerrard. (Daily Star)

Julio Cesar, nýr markvörður QPR, segist vilja vinna ensku úrvalsdeildina með Lundúnafélaginu. (Daily Mail)
Slapp
banner
banner
banner