Heimild: BBC
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vonast til að Theo Walcott verði áfram í herbúðum félagsins.
Walcott verður samningslaus næsta sumar en hann hefur hafnað nýjum fimm ára samningi sem hefði fært honum 75 þúsund pund í vikulaun.
Wenger er hins vegar vongóður um að Walcott muni ná samningum við Arsenal á endanum.
,,Peningar eru ekki aðalmálið hjá honum," sagði Wenger.
,,Það ber aðeins á milli. Við viljum framlengja samninginn og ég held að Theo elski félagið."





