Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 30. ágúst 2012 19:39
Sebastían Sævarsson Meyer
Liverpool nælir sér í ungan sóknarmann
Mynd: Liverpool FC
Liverpool hefur gengið frá kaupum á ungstirninu Samed Yesil frá Bayer Leverkusen.

Þessi 18 ára efnilegi sóknarmaður stóðst læknisskoðun í dag og mun spila með unglingaliði félagsins fyrst um sinn.

Yesil, sem er af tyrkneskum uppruna, hefur skorað 22 mörk í 26 leikjum fyrir yngri landslið Þýskalands.

Hann var næst markahæstur á HM U17 í Mexíkó í fyrra þegar hann skoraði sex mörk en hann er spenntur fyrir nýju áskoruninni.

,,Það fyrsta sem ég þarf að gera er að æfa, og síðan eftir eitt eða tvö ár, vona ég með skref frá skrefi að komast í aðalliðið," sagði Yesil.

,,Það er draumur að spila fyrir Liverpool og ég mun gefa allt sem ég á."
Slapp
banner