Liverpool er að undirbúa tilboð í Daniel Sturridge, framherja Chelsea, samkvæmt Skysports.
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, ætlar að reyna krækja í leikmanninn áður en félagskiptaglugginn lokar á morgun.
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, ætlar að reyna krækja í leikmanninn áður en félagskiptaglugginn lokar á morgun.
Sturridge myndi þá fylla skarð Andy Carroll sem lánaður var til West Ham út tímabilið.
Sturridge getur bæði spilað sem kantmaður eða í fremstu víglínu en eftir komu Eden Hazard, Marko Marin og Oscar til Chelsea hefur hann fallið aftar í goggunarröðinni.
Til að fá að spila meira gætir verið gott tækifæri fyrir leikmanninn að ganga til liðs við Liverpool en hann skoraði 11 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir