Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 09. september 2012 17:29
Sebastían Sævarsson Meyer
John Terry spilar ekki gegn Úkraínu
John Terry hefur verið útilokaður frá viðureign Englands og Úkraínu í undankeppni HM á þriðjudaginn vegna meiðsla.

Enski varnarmaðurinn varð fyrir ökklameiðslum í seinni hálfleik í 5-0 sigrinum gegn Moldavíu á föstudaginn en varð að klára leikinn því liðið var búið að nota allar skiptingar.

Liðsfélagi hans hjá Chelsea, Gary Cahill, er líklegur til að fylla hans skarð í vörninni en Phil Jagielka gæti einnig fengið að spreyta sig við hlið Joleon Lescott.

Þá var greint frá því í gær að Ashley Cole verður einnig fjarri góðu gamni vegna meiðsla á ökkla.
Slapp
banner
banner
banner